« Hundalógík um heilbrigðiskerfið | Aðalsíða | Illugi Gunnarsson »
18. september 2006
Spurning dagsins
Spurning dagsins er í boði Múrsins:
Hvað eru t.d. tvær verkfræðideildir að gera í þessu agnarlitla samfélagi þegar allur samanburður sem völ er á sýnir að ein ætti að vera kappnóg?Ánægjulegt er að sjá menn ergja sig út í úrvalið í okkar litla samfélagi. Hvað er 300 þúsund manna land að gera með tvö fullburða símfyrirtæki og nokkur minni sem kaupa aðgang að dreifikerfum þeirra? Hvað eru Íslendingar að spá með því að stunda viðskipti við þrjá fremur stóra alhliða banka, aragrúa sparisjóða og nokkra fjárfestingarbanka? Hvernig er hægt að réttlæta fjölda olíufélaganna í okkar litla samfélagi? Hvað með allar þessar matvöruverslanir sem hafa opið á öllum tímum sólarhrings, apótekin, stórmarkaðina, verslunarmiðstöðvarnar og verkfræðistofurnar? Nú eða þrjú skipafélög í millilandasiglingum og a.m.k. tvö íslensk flugfélög sem sinna farþegaflutningum út um allar trissur. Engar skýrslur um íbúafjölda og markaðsstæð geta útskýrt þennan mikla leyndardóm sem íslensk fyrirtækjaflóra er.
Svarið, ef einkennileg spurning hefur yfirleitt slíkt, getur til dæmis falist í því viðskiptafrelsi sem Alþingi Íslendinga hefur af sinni miklu náð leyft Íslendingum að njóta. Um leið og hinn frjálsi markaður fær olnbogarými til að starfa brýst út mikil flóra fyrirtækja af öllum tegundum og öll reyna þau að ná til sín viðskiptavinum og skjólstæðingum hvar sem þá er að finna. Háskólasamfélagið á Íslandi er bara nýlega búið að finna fyrir þessari náð Alþingismanna sem aðrar starfsgreinar hafa notið lengur (mislengi þó). Sem afleiðing þess hafa nú sprottið upp háskóladeildir og háskólar í meiri mæli en vinstrimönnum finnst vera kappnóg. Við hin hljótum samt að fagna enda hefur virk samkeppni og fjölbreyttur markaður sjaldan verið umkvörtunarefni hjá Íslendingum.
Geir Ágústsson kl. 19:33