« Frelsi til hvers? | Aðalsíða | Hugmyndir til góðs eða ills »
26. september 2006
Óréttlátt réttarkerfi
Hér á landi þurfa menn að hafa öðlast tiltekin réttindi til þess að geta flutt mál við dómstóla landsins. Til þess að geta hafið störf sem málflytjandi við héraðsdómstóla þarf maður að hafa stundað nám við aðra hvora lagadeildina í háskólum landsins og útskrifast þaðan. Síðan þarf maður að fara á sérstakt námskeið þar sem kenndar eru greinar sem tengjast málflutningi. Þá hlýtur maður lögmannsréttindi og má hefja störf við að reyna að gæta réttinda manna fyrir dómstólum. Eftir ákveðinn fjölda mála og flutning prófmála getur maður fengið málflutningsréttindi við Hæstarétt Íslands. Þetta kerfi er ekki réttlátt. Hver sem er ætti að mega flytja mál við dómstólana.
Ef einstaklingur telur að það hafi verið brotið á sér á einhvern hátt má hann að sjálfsögðu fara með málið fyrir dómstóla. Þar sem að það eru einungis hans eigin hagsmunir sem um ræðir sé ég ekki hvers vegna hann má ekki velja hvern sem er til þess að flytja málið fyrir sig.
Nú er það líka þannig að fólk velur yfirleitt hæfasta fólkið í svona hluti. Kannski eru reglurnar settar vegna ótta manna um að þeir menn sem hafa réttindi til málflutnings í dag missi vinnuna ef þeir eru ekki verndaðir af svona reglum. Ef reglurnar eru til staðar vegna þess að fólki sé yfirleitt ekki treystandi til þess að ákveða hvað þjónar þeirra eigin hagsmunum best, sem trúlega er rétta ástæðan, réttlætir það ekki bann heldur. Hver og einn veit aðeins hvað er best fyrir hann sjálfan, en hefur litla hugmynd um hvað best er fyrir aðra. Ef kerfið á að vera réttlátt þarf að afnema þessi lög.
Hlynur Jónsson kl. 22:44