« Illugi Gunnarsson | Aðalsíða | Frelsi til hvers? »

20. september 2006

Hvað gerist núna?

Á árunum 1991-1994 voru hægrimenn við völd í Svíþjóð. Tímabil þeirrar ríkisstjórnar sést á eftirfarandi mynd (þar sem kröpp niðursveiflan stoppar og breytist í hæga uppsveiflu):

Economist_Sweden.gif
Myndin sýnir verga þjóðarframleiðslu á mann í Svíþjóð sem hlutfall af meðalþjóðarframleiðslu í ríkjum OECD. Á litlum 50 árum tókst sænskum vinstrimönnum að keyra þetta hlutfall frá 120% og niður í 90%. Hægrimenn náðu þá tímabundið völdum (undir forystu Carl Bildt), sópuðu burtu reglum (t.d. í fjarskiptaiðnaðinum, orkugeiranum), einfölduðu rekstrarskilyrði fyrirtækja, breyttu umgjörð lífeyrissjóðakerfisins, innleiddu einkarekstur í skóla- og heilbrigðiskerfinu (sem blómstrar í dag) og börðust gegn útþenslu ríkisvaldsins. Svíar hafa notið þessara aðgerða síðan (þótt fjögur ár séu alltof skammur tími til að hagga 50 árum af uppsöfnuðum ríkisafskiptum).

Ef hægri- og miðjumenn hinnar nýmynduðu ríkisstjórnar Svíþjóðar standa við helstu af sínum góðu fyrirheitum er allt eins von á því að uppsveiflan sem hófst á 9. áratug seinustu aldar haldi áfram eða verði jafnvel hraðari. En sjáum hvað setur.

Geir Ágústsson kl. 14:26