« Heimsendirinn sem aldrei lætur sjá sig | Aðalsíða | Hundalógík um heilbrigðiskerfið »

16. september 2006

Hinn jafnaði nemandi

Á einum stað er að finna eftirfarandi orð:

Það eru sennilega engar ýkjur að skólakerfi þar sem allir nemendur sitja við sama borð (eða í það minnsta við samskonar borð) er öflugusta ráð samfélagsins til að berjast gegn ójöfnuði þegar til lengri tíma er litið.
Sennilega engar ýkjur og sennilega alveg hárrétt. Ef sama mataræði og sömu æfingunum er þvingað upp á alla er sennilega líklegt að allir munu hlaupa hvað jafnast hratt þegar til lengri tíma er litið. Þegar ríkisvaldið bannar hið frjálsa framtak og krefst þess að allir lesi sömu bækurnar við sömu borðin á sama hraða í samskonar skólum sem fylgja sömu námskrá er auðvelt að ímynda sér að allir komi eins jafnlærðir út úr útskrift og frekast er unnt. Þá fyrst þegar skólakerfinu sleppir geta einstaklingar byrjað að læra það sem þeir vilja (og geta).

Er þetta takmark vinstrimanna með því að banna frjálst framtak í skólakerfinu? Já, ef jöfnuður er lokatakmarkið.

Geir Ágústsson kl. 15:32