« Eru til lágmarkslaun? | Aðalsíða | Hinn jafnaði nemandi »

14. september 2006

Heimsendirinn sem aldrei lætur sjá sig

Hin fræga hrollvekja Al Gore, An Inconvenient Truth, eða Óþægilegur sannleikur, hefur nú verið sýnd á íslensku kvikmyndatjaldi og leitt af sér einhver skrif í kjölfarið. Tilvitnanir eru við hæfi:

„Gore leggur ríka áherslu á ábyrgð Bandaríkjanna enda er hún mikil. Bandaríkin hafa ekki viljað staðfesta Kyoto-bókunina.“
- Múrinn

„Staða Bandaríkjanna og Ástralíu er því ekki frábrugðin flestum öðrum ríkjum sem annað hvort þurfa ekki að taka á sig neinar skuldbindingar eða munu aldrei uppfylla skuldbindingar sínar. Bandaríkin og Ástralía eru bara ærleg með þá stöðu sína.“
- Vefþjóðviljinn

Sitt sýnist hverjum um mikilvægi þess að skrifa undir samkomulag sem enginn fer eftir og þvinga notkun verri og óhagkvæmari tækni og orku upp á fólk og fyrirtæki og um leið rýra almenn kjör og vöxt í samfélaginu. Al Gore slæst í hóp með Michael Moore sem „heimildamyndagerðarmaður“ sem lætur e.t.v. ekki standa sig að því að segja bein ósannindi (a.m.k. ekki nema geta vitnað í einhvern annan), en segir í besta falli hálfsannleikann og er seinn til að nefna ígrundaða gagnrýni sem beinist gegn hinum pólitíska rétttrúnaði.

Heimsendir er ekki í nánd. Hann var það ekki þegar heimsendaspádómar voru sagðir fyrir 50 árum og hann er ekki 50 ár í framtíðinni, a.m.k. ekki vegna breytinga á hitastigi andrúmsloftsins og hugsanlegra hliðarafleiðinga þess. Ábyrgir stjórnmálamenn gera sér grein fyrir þessu sem útskýrir m.a. hvers vegna Al Gore lagði ekki til að Kyoto-bókunn væri staðfest af Bandaríkjamönnum á meðan hann var í lykilstöðu í bandaríska stjórnkerfinu (ábyrgir stjórnmálamenn breytast því miður oft í óábyrga kvikmyndagerðarmenn). Tregða vestrænna stjórnmálamanna til að kæfa hagkerfi sín í nafni loftslagsbreytinga er einnig dæmi um að stjórnmálamenn sýna gjarnan ábyrgð í verki þótt þeir mæli fagurt til græningja í orði.

Þeir sem vilja brenna minni olíu kaupa sér sparneytnari bíl. Þeir sem vilja minna rusl kaupa einfaldlega varning í minni umbúðum. Þeir sem hafa áhyggjur af losun koldíoxíðs í andrúmsloftið (plöntur eru ekki þar á meðal) hafa næg úrræði sín á milli til að slökkva samviskubit sitt. Hvernig væri að láta okkur hin í friði og halda stjórnvöldum utan við málið?

Geir Ágústsson kl. 08:12