« Gay pride | Aðalsíða | Af hverju eru fangelsin full? »

15. ágúst 2006

Um kapítalistann

Guðmundur Steingrímsson skrifar eftirfarandi álit sitt í Bakþanka Fréttablaðsins þann 12. ágúst sl.

Kapítalisti er samkvæmt minni skilgreiningu manneskja sem á nóga peninga, en vill samt alltaf meira.
Ef Guðmundur skilur orðið „kapítal“ þannig að það þýði „fullt af peningum“ þá er e.t.v. hægt að sjá skynsemina í skilningi hans. Annars ekki.

Kapítalisti er fjárfestir, fjármagnseigandi og hluthafi. Hann er sá sem vill ávaxta sitt pund sem mest hann má (eða þorir). Á þann hátt sjá kapítalistar um að beina fjármagni í atvinnuvegi sem gengur vel og draga þá úr atvinnugreinum sem engum arði skila.

Sumir kapítalistar laðast að áhættu sem getur falið í sér mikla ávöxtun. Aðrir eru íhaldssamir og halda sig við rótgróna og stöðuga atvinnuvegi. Þannig ávaxtar lífeyrissjóður lífeyriseigandans Guðmundar Steingrímssonar líklega ekki mikið í hugbúnaðarfyrirtækjum og sprotafyrirtækjum en heldur sig frekar við ákveðnar fyrirframskilgreindar hlutabréfakörfur sem frekar eiga það til að hækka jafnt og þétt frekar en mikið og ört; lítil áhætta í skiptum fyrir örugga en litla ávöxtun.

Kapítalistar hafa ekki alltaf rétt fyrir sér og eru missæknir í áhættu. Fyrirtækið deCode á Íslandi er fjármagnað af fjárfestum sem sjá fram á mikinn vöxt líftæknigeirans og vonast eftir mikilli ávöxtun en taka í staðinn áhættuna sem fylgir því að troða nýja slóða. Þessir fjárfestar telja sig ekki eiga næga peninga þótt bakþankapennum gæti þótt það. Þeir gætu jafnvel verið menn sem hafa sparað saman í mörg ár til þess eins að leggja spariféð undir í von um mikla ávöxtun þess. Aðalatriðið er samt að þeir eru tilbúnir að leggja til fé til fyrirtækja sem þannig geta ýtt úr vör hugmynd sem kannski gengur upp og kannnski ekki. Aðalatriðið er að kapítalistarnir, hvort sem þeir sitja á miklu kapítali eða litlu, fái frelsi frá stjórnvöldum til að fylgja eftir eigin nefi í viðskiptum á frjálsum markaði.

„Kapítalisti“ er ekki rétt skilið hugtak ef því er einfaldlega blandað saman við peningamagnið á bankabók kapítalistans. Kapítalisti er sá sem hefur ákveðið kapítal til umráða sem hann vill með einhverju móti auka. Tilvist hans í okkar samfélagi er alveg gríðarlega mikilvæg og því fleiri sem finnast af þessum einstaklingum, því betra.

Geir Ágústsson kl. 15:01