« Enn af afþreyingu | Aðalsíða | pólitískar fjárfestingar »
6. ágúst 2006
Ofurlaun og peningahyggja
Í Morgunblaðinu í gær birtust ummæli forystumanna allra stjórnmálaflokka um há laun nokkurra stjórnenda fyrirtækja. Ummælin voru af ýmsum toga en allt þetta fólk virtist sammála um að það væri eitthvað ósiðlegt við að greiða tilteknum starfsmönnum of há laun.
Það er erfitt að sjá hvers vegna þessi háu laun eru skyndilega orðin að vandamáli í þjóðfélaginu. Hvers vegna er það vandamál að eigendur fyrirtækja ákveði frekar að greiða stjórnanda hærri laun en að taka allan hagnaðinn beint í eigin vasa?
Það er óumdeilanleg staðreynd að hækkandi laun stjórnenda fyrirtækja hafa ekki leitt til lækkunar launa annarra. Þvert á móti hafa laun almennt hækkað og meðalmaðurinn hefur það betra en áður en þessi þróun hófst. Þess vegna er hér spurt hvert sé hið samfélagslega vandamál sem er afleiðing háu launanna.
Ef ummæli stjórnmálamannanna eru skoðuð er engin rök að finna heldur einungis tal um „þjóðarsálina“ og svipuð ytri fyrirbæri sem fólkið ímyndar sér að séu raunveruleg.
Vandamálið er ekki að finna úti í samfélaginu eða meintri sál þess. Það er einungis til í huga hvers og eins. Vandamálið er einfaldlega öfund. Í stað þess að fagna almennt stórbættum kaupmætti launafólks og að fyllast bjartsýni yfir því að hægt sé að bera svo mikið út býtum sem dæmin um stjórnendurna sanna, þá setur fólk upp skeifu.
Ég hef verulegar áhyggjur af þessari peningahyggju. Það er gengið út frá því að fólk geti ekki lifað í sátt og samlyndi ef sumir eiga skyndilega miklu meiri peninga en áður. Ójöfnuður fólks hvað varðar aðra hluti s.s. fjölskyldustærð, ást, umhyggju og vináttutengsl, virðast ekki gefa tilefni til þess þjóðfélagið fari á hvolf og samfélagssáttin rofni.
Oddgeir Einarsson kl. 13:04