« Hver er munurinn á hægri- og vinstrimönnum? | Aðalsíða | Eru til lágmarkslaun? »

25. ágúst 2006

Myndast fjármagn með reglugerðum?

engir_bidlistar.jpg Í gær birti Fréttablaðið litla en athyglisverða frétt um biðlista eftir heyrnartækjum á Íslandi. Nú er svo komið að „biðlistar heyra sögunni til“, eitthvað sem er varla hægt að segja um mörg önnur svið heilbrigðiskerfisins, og svo sannarlega góðar fréttir fyrir heyrnarskerta.

Hvernig stendur svo á því að biðlistar eftir heyrnartækjum eru nú horfnir? Fréttin veitir örlitla innsýn í það: Kostnaðarþáttur einstaklingsins hefur „aukist“ og fjármagn hefur „myndast“ eftir reglugerðarbreytingu fyrir tæpum þremur árum síðan.

Á mannamáli þýddi reglugerðarbreytingin einfaldlega að ríkið afnám einokun sína af viðskiptum með heyrnartæki. Einkaaðilar urðu til sem náðu til sín vel borgandi viðskiptavinum, þ.e. þeim sem gátu keypt sig út úr biðröð hins opinbera, og flöskuhálsar, biðlistar og önnur óþægindi hurfu á örfáum misserum.

Talsmenn ríkiseinokunar á heilbrigðisþjónustu segja gjarnan að aukin aðkoma einkaaðila muni leiða til þess að þeir ríku kaupi sig „fram fyrir“ í röðinni. Hvað ef þeir ríku mynda einfaldlega aðra röð og stytta þannig hina sem hinir efnaminni þurfa að standa í, eða hreinlega útrýma henni? Eru þá ekki allir betur staddir?

Geir Ágústsson kl. 15:03