« pólitískar fjárfestingar | Aðalsíða | Ingibjörg og syndirnar sjö »
8. ágúst 2006
Hið yndislega frelsi - frá sköttum!
Í stefnumálum Frjálshyggjufélagsins segir á einum stað:
Skattar eru frelsisskerðing. Því til rökstuðnings má benda á að þræll, sem þarf að vinna fyrir aðra, er ekki frjáls. Maður sem greiðir helming tekna sinna í skatta er hálfur þræll. Ekki skiptir máli hvort valdhafar telji sig nota peningana til góðra verka.Margir hafa gagnrýnt þetta viðhorf frjálshyggjumanna til skattlagningar. Sumir halda því jafnvel fram að skattar séu ekki þvinguð innheimta fjár heldur hluti af einhvers konar samfélagssáttmála sem allir séu samþykkir, þótt ekki sé nema í hljóði (en myndu að öðrum kosti yfirgefa landið eða kjósa stjórnmálamenn sem eru andvígir skattlagningu sem hugmynd, hvar sem þeir nú finnast).
Hvað sem hugmyndafræðilegu þrasi líður er samt ljóst að fólk er fegið skattfrelsinu hvar sem það er að finna. Fríhafnir flugvalla og skipa í millilandasiglingum eru vel sóttar og ég hef aldrei heyrt um vinstrisinnaðan ferðalang sem fær slæmt samviskubit yfir að versla í slíkri verslun. Hagkaup auglýsir virðisaukaskattfrjálsa daga þar sem álagningunni er fórnað svo verðinu megi líkja við verðlag í fjarveru virðisaukaskattsins. Engum dettur í hug að rukka vini sína og vandamenn um virðisauka af launuðum viðvikum. Sjálfur hef ég kennt aukatíma, málað veggi, sópað gólf, lesið yfir, flutt húsgögn og plantað trjám án þess að senda ríkisvaldinu hluta vinnulaunanna. Smygl rýkur út á hinum íslenska svarta markaði. Einstaklingar, hjón og sambýlisfólk gerir allt sem það getur til að nýta persónuafsláttinn sem best.
Menn geta sagt hvað sem þeir vilja um hvað almenningi finnst um skattheimtu. Þegar allt kemur til alls eru það verkin sem tala og verkin segja eina sögu: Þegar fólk getur notið skattfrelsis þá er tækifærið nýtt (innan þeirra marka sem taugar og fyrirhöfn setja mismunandi einstaklingum).
Geir Ágústsson kl. 15:20