« Af hverju eru fangelsin full? | Aðalsíða | Innheimtan við Kárahnjúka »

17. ágúst 2006

Enn um neyslustýringu skattkerfisins

Þórður Sveinsson, MÍR-verji, var svo vænn að svara skrifum sem birtust á þessum vettvangi sem svar við þessari viðleitni til að þræta fyrir það augljósa:

Að neyða einhvern til að greiða fyrir eitthvað (eða neita viðkomandi að velja tiltekinn varning, rekstraraðila eða veitanda frá) er neyslustýring (þjófnaður), sama hvað fénu er eytt í.

Menn mega svo eiga það við sjálfa sig hvaða stóryrði eru notuð um þessa augljósu staðreynd (eða skoðanir þeirra sem þylja hana upp). Hægri- og vinstrimenn rífast ekki um það hvort skattar séu neyslustýring eða ekki, heldur hvort hægt sé að réttlæta neyslustýringuna (t.d. út frá hugmyndum um framlag til samfélags eða réttlætið í því að sumir hafi betur borguð störf en aðrir). Skattar eru neyslustýring. Ábyrgð vinstrimanna liggur í því að réttlæta hana, ekki þræta fyrir hið augljósa. Í leiðinni mega þeir svo auðvitað útskýra hvers vegna einokunarstarfsemi sem bannar samkeppni við sig með lögum og velur bæði hverjir borga og hversu mikið er frjálsu framtaki fremri.

Geir Ágústsson kl. 17:36