« Feluleikur fjármálaráðherra | Aðalsíða | Ofurlaun og peningahyggja »

2. ágúst 2006

Enn af afþreyingu

Menning, list, afþreying, skemmtun, stundargaman, dægradvöl. Eflaust má finna fleiri orð í sama dúr. Það skiptir ekki máli hvort þetta sé allt sama hugtakið eða bútað niður í smærri hugtök. Ekkert sem fellur undir þennan þátt mannlífsins á að vera til ef hvorki veitandinn né viðtakandinn vilja standa undir fullum kostnaði af því sem fram fer af fúsum og frjálsum vilja. Það bendir nefnilega til þess að þeir báðir vilji eyða orku sinni í annað en að standa undir kostnaðnum af samskiptum sínum. Þeir meta semsagt sjálfir aðra hluti meira. Og því síður ættu einhverjir aðrir sem hvorki veita né njóta að þurfa að eyða tíma sínum í að vinna fyrir þessum samskiptum. Þess vegna á ekki að nota skattfé í neins konar afþreyingu, hvort sem hún er kölluð list eða sorp. Þess vegna er Sinfónían, Þjóðleikhúsið og hvað þetta heitir nú allt saman fjármagnað á ósiðlegan hátt. Af hverju þarf fiskverkakona á Siglufirði að láta hluta af launum sínum renna undir rassinn á pelsakellingu sem vill sjá hámenningu í Reykjavík?

Oddgeir Einarsson kl. 01:53