« Um kapítalistann | Aðalsíða | Enn um neyslustýringu skattkerfisins »
16. ágúst 2006
Af hverju eru fangelsin full?
Í fréttum er nú sagt frá því að fangelsi á Íslandi séu yfirfull og að jafnvel þurfi að fresta afplánun fanga vegna þess. Þingmenn eru risnir á afturfæturnar og boða til aðgerða til að laga ástandið. En hvernig stendur á því að íslensk fangelsi séu nú að fyllast? Núna er góðæri, næga vinnu að fá og Íslendingum hefur varla fjölgað það hratt að það dugi til að útskýra hlutfallslega fjölgun fanga á seinni árum.
Á Íslandi eru margar ofbeldislausar athafnir bannaðar með lögum. Sem dæmi má nefna smygl og sölu á fíkniefnum. Íslensk yfirvöld hafa verið dugleg að hafa hendur í hári einstaklinga sem kaupa eða selja fíkniefni eða hafa þau undir höndum. Þessum einstaklingum er vísað í tukthúsið til margra ára, jafnvel fleiri en ofbeldismenn, barnaníðingar og nauðgarar. Þetta er öfugsnúið ástand og veldur tvenns konar vandræðum: Fangelsi fyllast og kraftar lögreglunnar eru dregnir frá ofbeldisglæpum og þjófnuðum og að kaupendum og seljendum óvinsæls varnings.
Yfirfull fangelsi eru heimatilbúið vandamál sem má leysa með því einfaldlega að hætta að gera ofbeldislaus athæfi að glæp. Annars er hætt við að tröllasögurnar úr bandarísku fangelsisumhverfi flytjist inn til Íslands, þar sem meinlausir einstaklingar (sem náðust með fíkniefni eða smyglvarning) eru látnir dúsa með harðsvíruðum glæpamönnum í yfirfullum fangelsum þar sem þeir læra í eitt skipti fyrir öll hvernig á að lifa af í löglausum undirheimum samfélagsis. Stækkun fangelsa og heimatilbúin fjölgun glæpamanna leysir engin vandamál.
Geir Ágústsson kl. 18:56