« Kartöflur og frjálshyggja | Aðalsíða | Spádómur »
22. júlí 2006
Vörn í sókn?
Frjálshyggjumenn finna sig oft í harðri varnarbaráttu fyrir hugmyndum sínum. Þegar þeir benda á að réttast væri að einkavæða hið íslenska landbúnaðarkerfi (hugmynd sem er reyndar orðin ansi vinsæl í dag þökk sé óvinsældum Framsóknarflokksins) eru þeir spurðir hvers vegna og af hverju eigi að breyta til frá núverandi fyrirkomulagi. Þegar frjálshyggjumenn boða aukið einkaframtak í rekstri fyrirtækja á sviði menntunar og heilbrigðisgæslu er þeim sagt að slíkt sé nú óþarfi því ríkið hafi þennan rekstur á sinni könnu og svoleiðis eigi það að vera áfram (stöku sinnum bent á að einokun ríkisins á nákvæmlega þessum rekstri tryggi aðgengi og þjónustu fyrir þá fátæku, sem heldur auðvitað ekki vatni).
Sjaldnar heyrist frjálshyggjumaðurinn spurja íhaldsmanninn um hvað sá síðarnefndi telji vera hlutverk ríkisins, hvernig það sé rökstutt, og hvernig hinn og þessi ríkisrekstur samræmist því hlutverki. Ég man ekki eftir að Marx, Kant, Hayek eða hvað þeir nú heita hafi eytt miklu púðri í að réttlæta afskipti ríkisins af mataræði, ímynd íslenska hestsins og kynjaskiptingu innan einstakra (sérvaldra) atvinnugreina. Enginn hefur í raun eytt miklu púðri í að réttlæta ríkisafskipti af neinu. Því er gleymt að ríkið ryður einkaaðilum úr vegi þegar það útvíkkar umráðasvæði sitt og setur upp vegatálma með lögum og sköttum sem enginn kemst framhjá nema vilja sjá innanrými fangaklefa. Væri ekki lágmark að rökstyðja útvíkkun ríkisvaldsins þegar svo er og líta gagnrýnum augum á rýmið sem ríkið tekur í dag?
Frjálshyggjumenn byrja á réttum enda og segja: Skilgreinum hlutverk ríkisvaldsins (ef við viljum slíkt), týnum til þau fáu og vel afmörkuðu verkefni sem samræmast því hlutverki og látum markaðinn sjá um hitt.
Íslenskur raunveruleiki byrjar á hinum endanum: Týnum til þau verkefni sem ríkisvaldið hefur á höndum sínum í dag og ýmist fjölgum þeim eða bætum við þau sem fyrir eru, og látum svo þessa frjálshyggjupésa um að rökstyðja af hverju við ættum að gera hlutina öðruvísi.
Geir Ágústsson kl. 09:47