« Vörn í sókn? | Aðalsíða | Hræðilegt stríð »

23. júlí 2006

Spádómur

Takið eftir því hvernig allir flokkar munu allt í einu vilja breytingar á landbúnaðarkerfinu þegar einhver flokkur byrjar á því. Kannski allir nema einn. Svona eins og í flugvallarmálinu. Ástæðan er sú að atkvæði neytenda vega mun þyngra en atkvæði bænda.

Það íróníska er að ef Samfylkingin verður fyrst til að bjóða kjósendum aukið frelsi hér munum við fá vinstristjórn 2007. Þetta er besta og eina dauðafæri Samfylkingarinnar í kosningabaráttunni sem nú fer í hönd. Össur myndi a.m.k. reyna að nýta það en ég efast um að ISG reyni að skora. Hver og einn verður að dæma um það fyrir sig hvort það er jákvætt eða neikvætt.

Oddgeir Einarsson kl. 18:04