« Þvinguð rukkun er aldrei réttlætanleg | Aðalsíða | Vörn í sókn? »
19. júlí 2006
Kartöflur og frjálshyggja
Í landi sem frjálshyggjumenn réðu lögum væri öllum frjálst að selja hverjum sem er hvaða matvæli sem er. Kröfur neytenda im gæði og verð réðu því hvað selt væri. Í slíku landi væru ekki til heilu lagabálkarnir af hömlum og styrkjum sem hefðu þau áhrif að skekkja niðurstöðu markaðarins um framboð til að mæta eftirspurn neytenda. Þarmeð væri ekki til neitt landbúnaðarráðuneyti. Samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2006 eru rúmlega 13 milljarðar teknir af vinnandi fólki og þeir afhentir landbúnaðarráðuneytinu til ráðstöfunar. Það gera um 43 þúsund krónur á hvert mannsbarn á Íslandi.
Það er hægt að kaupa nokkrar kartöflur árlega fyrir 43 þúsundkall.
Ef stærstu samkeppnishömlunum væri auk þess rutt úr vegi myndi kartöflunum sem fengjust fyrir 43 þúsundkallinn fjölgja stórlega.
Fólk yrði líklega svo fullsatt af karöflum að það færi að nota peningana í annað, t.d. að eiga fyrir skuldunum, sem brátt munu gjaldfalla á mörgu heimilinu ef spádómar svartsýnna manna ganga eftir.
Svona er að hafa ekki nógu marga frjálshyggjumenn á þingi.
Oddgeir Einarsson kl. 02:10