« Aðeins dýrara, aðeins flóknara og aðeins meiri óvissa í boði Alþingis | Aðalsíða | Ítalía „fór alla leið“ »

6. júlí 2006

Þýðing

Á Múrnum stendur nú skrifað:

Þökk sé framtaki nokkurra einstaklinga er nú kominn áhugaverður áfangastaður í menningartengdri ferðaþjónustu á þessari litlu landræmu milli fjallsins og jökulsins.
Þetta er óvenjuvingjarnleg setning í garð frjálsra framlaga. Múrs-menn eru vanari að skrifa eitthvað í ætt við,
Fjármagnseigendur hafa nú ákveðið að nota eitthvað af því fé sem þeir sviku samneysluna um til að styrkja málefni sem þeir sjálfir hafa taugar til, án þess að biðja um leyfi frá lýðræðislega kjörnum þingmönnum hins almáttuga ríkisvalds.
Ef til vill er óþarflega mikil kaldhæðni fólgin í þessum orðum en ég sé samt ekki að með rangt mál sé farið. Múrs-menn fyrirlíta gjarnan það sem fer fram í óþvinguðu samstarfi einstaklinga og því furða að frjálsum framlögum fjársterkra einstaklinga sé nú sleppt við harðorðar yfirlýsingar um valdahagsmuni, eiginhagsmunahyggju og græðgi.

Ætli vægð Múrs-manna megi útskýra með því að nú var fjármagni fjármagnseigenda óþvingað eytt í eitthvað sem er Múrs-mönnum persónulega að skapi? Ef svo er þá er um prýðileg þingmannsefni að ræða! Múrinn á Alþingi 2007!

Geir Ágústsson kl. 21:32