« Ástaróheppnisskatturinn | Aðalsíða | Aðeins dýrara, aðeins flóknara og aðeins meiri óvissa í boði Alþingis »
5. júlí 2006
Hvernig væri það?
Hvernig væri það ef þeir sem kjósa reyklaust umhverfi myndu beina viðskiptum sínum til þeirra sem bjóða upp á slíkt? Þeir sem kjósa rómantískar gamanmyndir eru ekki neyddir til að horfa á ofbeldisfullar hasarmyndir. Þeir sem vilja drekka kaffibollann í reyklausu umhverfi að degi til fara á Kaffi Súfus í staðinn fyrir Kaffi List. Af hverju þurfa þeir sem neyta áfengis á síðkvöldum um helgar að líða fyrir vilja heimtufrekjanna og þiggja óvelkomna aðstoð ríkisvaldsins til að drekka bjór í reyklausu rými? Í þessu er ekki heil brú.
Frjálst samfélag er í sífellt auknum mæli byrjað að snúast um vilja þeirra sem hæst góla. Skemmtistaðir mettaðir skýjuðu tóbakslofti örfárra reykingamanna eru í sjálfu sér ekkert merki um velvilja eða andúð einstakra manna á óbeinum reykingum. Vel straujuð debetkort og biðraðir utan við vinsæla og reykmettaða staði segja hins vegar sína sögu. Hvernig væri að reyna hina óþvinguðu leið skemmtistaðarstarfsemi í reyklausu umhverfi áður en togað er í eftirlátssama þingmenn og hrópað eftir boðum og bönnum? Er ekki meiri innistæða fyrir ofhlöðnum lýsingum um kröfu næturveranna um reyklaust umhverfi en það? Ríflega þrír fjórðu hlutar Íslendinga kalla sig reyklausa í könnunum. Eru slíkar yfirlýsingar eingöngu við hæfi þegar það þóknast tóbaksvarnarnefndum í leit að meiri fjárstuðning úr vösum skattgreiðenda?
Í þessu er ekki heil brú.
Geir Ágústsson kl. 22:46