« Hræðilegt stríð | Aðalsíða | Enn af afþreyingu »
27. júlí 2006
Feluleikur fjármálaráðherra
Árni Mathiesen, fjármálaráðherra segir að erfitt yrði að fara að tillögum formanns matvælaverðsnefndar um lækkun matvælaverðs því ljóst sé að þær séu í óþökk hluta nefndarinnar.
Það er með ólíkindum að svona röksemdir séu bornar á borð kjósenda. Réttmæti þess að fella niður verndartolla er algerlega óháð þeirri staðreynd að ríkisstjórnin ákvað að eyða skattpeningum í að skipa einhverja nefnd. Því síður skiptir álit fulltrúa þeirra sem tollarnir vernda máli. Með sömu rökum væri hægt að færa rök fyrir að hverskonar óréttmætt ástand viðhéldist með því einu að skipa nefnd og tilnefna m.a. í hana fulltrúa þess hóps sem hefur hag á óréttlætinu. Ætli kosningaréttur væri ekki enn bundinn við karlmenn ef nefndarálit eins karlsfursks hefði getað hindrað framfarir svo auðveldlega?
Svo eru óljósar tilvísanir Árna í alþjóðasamninga hlægilegar í þessu sambandi. Ég get fullvissað ráðherrann um það að íslenska ríkið hefur ekki skuldbundið sig gagnvart neinu ríki að hindra íbúa þess í að eiga viðskipti við Íslendinga.
Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki falið sig á bak við einhvern bónda í einhverri nefnd þótt hann skammist sín fyrir þá afstöðu sína að vilja ekki stuðla að frelsi í viðskiptum milli íbúa þessa lands og annarra. Ástæða þess að Sjálfstæðisflokkurinn skammast sín svona mikið er sú að jafnvel vinstriflokkarnir hafa viðurkennt þá staðreynd að frelsi í viðskiptum skilar sér til neytenda.
Oddgeir Einarsson kl. 22:02