« Af uppeldi barna | Aðalsíða | „Drekkjum Íslandi, ekki Valgerði“ »
17. júní 2006
Hvað eru stjórnmál?
Anna Tryggadóttir skrifar í pistli á vef Ungra Vinstri-grænna:
Stjórnmál snúast um að forgangsröðun. Þau snúast um að ákveða hvað á að gera, hvenær á að spara, hvað má bíða og hvað ekki.Þetta er svo sannarlega svalandi lesning á vef vinstrisinnaðra einstaklinga. Stjórnmál snúast nefninlega um að stjórna, hverju á að stjórna, hvernig á að stjórna því og hversu mikið fjármagn er sett í stjórnunina. Þegar stjórnmálamaður stjórnar einhverju þá stjórnar einhver annar því ekki. Einhver einn, eða einhver ein samkoma, sér um að stjórna og aðrir sjá um að hlýða.
Séreinkenni stjórnmálanna er hins vegar það að þegar stjórnmálamenn ákveða að þeir vilji stjórna einhverju þá getur enginn annar ákveðið neitt annað (að viðlagðri lögregluheimsókn). Þetta er kjarninn í vandamálum ríkisrekstursins. Ef hið opinbera knýr einhverju fyrirkomulagi á þá verða allir einfaldlega að una því. Af þessum ástæðum er hið íslenska heilbrigðiskerfi að þenjast út í kostnaði en dragast saman í þjónustu og gæðum (m.v. útgjöldin til þess). Af þessum ástæðum er hið íslenska menntakerfi iðulega fjársvelt og ósveigjanleg (ef marka má tal talsmanna kerfisins og skjólstæðinga þess), þrátt fyrir auknar fjárveitingar til þess úr vösum skattgreiðenda. Af þessum ástæðum eru hundruðir nefnda að störfum að finna leiðir til að plástra sárin á sísjúku kerfinu sem er algjörlega ótengt sambandi framboðs og eftirspurnar.
Stjórnmál snúast um að stjórna. Stjórnmálamenn stjórna þannig að enginn annar geti stjórnað. Á frjálsum markaði gilda lögmál framboðs og eftirspurnar, og á frjálsum markaði stjórnar enginn nema hafa breitt samþykki hluthafa og viðskiptavina. Mein stjórnmálanna liggja í orðum Önnu Tryggvadóttur, og það má gjarnan hafa í huga.
Geir Ágústsson kl. 20:38