« Bensínafgreiðlumenn í Listasafni Íslands | Aðalsíða | Listilegar röksemdir Illluga »
5. júní 2006
Einkabíllinn varinn árás hins opinbera
Helgi Hrafn Ólafsson, pistlahöfundur á vefritinu vinstri.is, skrifaði áhugaverða grein á vefrit sitt um daginn þar sem margir góðir punktar koma fram. Má segja að unnendur frelsis og minnkandi opinberra afskipta af hegðun og fjárnotkun hafi fengið óvæntan liðsauka í Helga núna.
Í fyrsta lagi bendir Helgi á að opinber gjaldtaka þýði að ráðstöfunarfé er rifið af sumum og fært öðrum. Fórnarlömbin eru þeir sem síst þurfa á minnkun ráðstöfunartekna að halda. Afleiðingin er svo vaxandi umsvif hins opinbera, með fleiri opinberum starfsmönnum eða meira álagi á þá sem fyrir eru, því vitaskuld þarf að fylgja opinberu gjaldtökunni eftir með eftirliti og jafnvel valdi.
Í öðru lagi bendir Helgi á leið sem sameinar kosti hópferða og einkabílisma - nefninlega að fólk bjóði og þiggi far til skiptis, og deili kostnaði við ferðalög í einkabílum. Helga er líklega ljóst að strætisvagnakerfi er óhentugt fyrir fámenna og dreifða borg eins og Reykjavík og að einkabílar bjóða upp á sveigjanleika sem fólk kýs þrátt fyrir himinháa skatta af bifreiðum og bensíni.
Í þriðja lagi minnir Helgi okkur á gamla hugmynd Péturs Blöndals sem fjallar um breytingu á tímasetningum fyrstu kennslustunda í Háskóla Íslands. Um hana má deila, en sjálfsagt að taka hana aftur upp sem innlegg í umræðuna.
Vangaveltur Helga eru góðra gjalda verðar. Lausnin á öllu sem heitir umferðaröngþveiti hlýtur samt að felast í því að tengja saman framboð og eftirspurn, og slíkt leysist best á hinum frjálsa markaði í umhverfi séreignarréttar og frjálsra markaðslögmála.
Geir Ágústsson kl. 11:44