« Hvað eru stjórnmál? | Aðalsíða | Af kuflum, nekt og ofbeldi »

19. júní 2006

„Drekkjum Íslandi, ekki Valgerði“

Þeir sem horfðu á Grímuna sáu að íslenskir listamenn hafa tekið upp þá tísku sem þeir hafa séð á útlenskum verðlaunaafhendingum að þeir sem fara upp á svið ausa skömmum yfir stjórnvöld og hinir klappa með. Einn leikarinn sagði í kaldhæðni að mótmælendur hefðu kannski átt að krefjast þess að Íslandi yrði drekkt í stað Valgerðar en ekki öfugt. Uppskar hann mikil fagnaðarlæti.

En hvað var leikarinn að gefa í skyn með kaldhæðni sinni? Jú, að það væri hreint ekkert betra að vilja nýta hluta landsins undir virkjanir vatnsafla (eða „drekkja Íslandi“) en að vilja drepa Valgerði Sverrisdóttur. Smekklegt?

Þegar maður sér ríkislistamenn klappa fyrir svona ósóma þá hvarflar að manni að vera á móti nauðungarskattgreiðslum til lista af fleiri ástæðum en þeim sem leiða beint af frjálshyggjurökum.

Oddgeir Einarsson kl. 11:59