« Hvað þýðir gjaldfrjáls leikskóli? | Aðalsíða | Einkabíllinn varinn árás hins opinbera »
2. júní 2006
Bensínafgreiðlumenn í Listasafni Íslands
„ÓKEYPIS AÐGANGUR - FREE ADMISSION“
Þetta voru einkunnarorð Listasafns Íslands vegna sýningar Steingríms Eyfjörðs listamanns þann 21. maí sl. Með þessu er ekki átt við að starfsmenn listasafnsins vinni þar í sjálfboðavinnu og að byggingin hafi verið látin því í fé af fúsum og frjálsum vilja einhvers. Nei, eins og margoft hefur verið bent á í þessu bloggi, þá þýða svona ókeypisfrasar aðeins að allt almúgafólk hefur neyðst til að eyða aðeins stærri hluta lífsins í vinnunni til að greiða fyrir rekstur listasafnsins. Þetta á við um alla vinnandi menn, líka bensínafgreiðslumanninn á Ísafirði sem hefur aldrei heyrt um Steingrím Eyfjörð og hefur hvorki tíma né áhuga á að vita hver hann er.
Ég ætla þó hér að freistast til að leiða alla bensínafgreiðslumenn þessa lands í sannleikann um Steingrím. Á heimasíðu Listasafns Íslands er m.a. fjallað um „[t]ilraunir listamannsins til að gefa einstaklingnum frelsi í gegnum myndlistina með því að gera áhorfandanum ljóst að honum er fullkomlega frjálst að draga eigin ályktanir“
Þeir bensínafgreiðslumenn sem þurfa að vinna yfirvinnu til að halda úti sýningum á borð við Steingríms fara algerlega á mis við tilraunir listamannsins til að veita þeim frelsi. Bensínafgreiðlumönnum er lítil huggun í því að hugsanlega finni hipp og kúl fólk með hvítvínsglös fyrir þessu frelsi á sama tíma og þeir eru að vinna yfirvinnuna sína.
En ekki er öll nótt úti. Eftirfarandi upplýsingar er að finna í tilkynningu listasafnsins um framangreinda sýningu Steingríms. Það geta allir haft gaman að henni af því að hún minnir á skopskyn Fóstbræðra, sem margir muna eftir. Það geta líklega fleiri haft gaman að þessarri tilkynningu en þeir sem hafa tíma til að skála í hvítvíni yfir verkum Steingríms:
Steingrímur Eyfjörð tók virkan þátt í þeirri gerjun sem átti sér stað á árunum 1975-79 er listamenn leituðu nýrra leiða og reyndu að endurskilgreina hlutverk sitt og listarinnar í samfélaginu. Í verkum Steingríms má finna ástríðufulla og fordómalausa rökræðu þar sem fegurðin og hið ljóðræna við alla sköpun eru snertifletir.
Oddgeir Einarsson kl. 08:32