« Afleikur ríkisstjórnarinnar | Aðalsíða | Hvernig væri það? »
28. júní 2006
Ástaróheppnisskatturinn
Í gær fengu samkynhneigð pör sama rétt og gagnkynhneigð pör varðandi fjölmörg atriði.
Meðal annars njóta öll skráð pör nú sama skattalega hagræðisins sem einstæðir njóta ekki.
Það var almennt talið ójafnrétti og mannréttindabrot í fyrradag að samkynhneigðir eintaklingar nutu ekki sama réttar og gagnkynhnegðir, m.a. hvað þetta skattalega hagræði varðar.
Í dag búa einstæðir við óhagkvæmara skattumhverfi en einstaklingar sem eiga sér lífsförunaut. Hvað er það í fari einstæðra manna sem réttlætir þetta ójafnrétti og mannréttindabrot gagnvart þeim?
Oddgeir Einarsson kl. 00:19