« Um áhrif mannsins á gróðurhúsaáhrifin | Aðalsíða | Ástaróheppnisskatturinn »
23. júní 2006
Afleikur ríkisstjórnarinnar
Það er mjög sérstakt að fylgjast með þeirri gagnrýni sem fram hefur komið vegna áætlunar ríkisstjórnarinnar um að hætta við að hætta að taka hluta þeirra peninga sem saklaust, vinnandi, fólk hefur stritað inn fyrir.
Stjórnarandstaðan virðist ekki ætla að nýta sér þá hneisu sem felst í því að lofa fólki því að það megi reikna með því að halda eftir stærri hluta launa sinna eftir áramót en svíkja það síðan þegar þrýstihópur ASÍ mætir á fund ríkisstjórnarinnar.
Margir hafa væntanlega reiknað með að þessar krónur þeirra væru ekki teknar af þeim og þannig e.t.v. séð fram á að geta greitt af lánum o.fl. Þessir einstaklingar, og fjölskyldur þeirra, munu nú eiga erfiðara um vik. Fyrir þetta fólk er það lítil huggun þótt Geir H. Haarde segist hróðugur ætla að láta einhverja aðra en þá sem unnu fyrir peningunum hafa þá.
Oddgeir Einarsson kl. 08:30