« „Drekkjum Íslandi, ekki Valgerði“ | Aðalsíða | Um áhrif mannsins á gróðurhúsaáhrifin »
22. júní 2006
Af kuflum, nekt og ofbeldi
Það var óvenju gaman að lesa greinina á Múrnum í dag. Múrinn segir það ofbeldi að banna fólki að klæðast tiltekinni flík, eins og opinberir skólar í Noregi Svíþjóð og Frakklandi hafa gert.
Fyrir mér mega kennarar og nemendur kæðast nákvæmlega því sem þeir vilja og jafnvel engu ef því er að skipta. Opinberar reglur um hvort tiltekinn maður megi klæðast einhverju eða ekki klæðast valda því að það verða alltaf einhverjir ósáttir, hvort sem það eru þeir sem vilja vera annað hvort kappklæddir eða naktir, eða hinir sem þurfa að vera innan um slíkt fólk dagsdaglega.
Lausnin blasir við. Að fólk velji sér skóla eftir því hvaða leikreglur gilda að þessu leyti sem öðru. Þess vegna ber að hafna stöðluðum opinberum skólum með miðlægum viðmiðum fyrir alla. Fólk geti þá valið skóla sem hentar þeirra siðgæði best, hvort sem það felst í því að klæðast munkakuflum eða Evuklæðum.
Oddgeir Einarsson kl. 16:18