« Kaldhæðni eða afskaplega nútímalegt viðhorf? | Aðalsíða | Bara pínulítill skattur... »

25. maí 2006

Tekjuskiptingin ójafna

Ef það er eitthvað sem einkennir íslenskt efnahagslíf á seinustu árum þá er það mikill uppgangur, vaxandi kaupmáttur allra launa, aukið frelsi, meiri sveigjanleiki, lægri verðbólga og sterkara atvinnulíf en áður hefur þekkst í Íslandssögunni. Framtakssamir einstaklingar hafa byggt upp stór fyrirtæki sem teygja anga sína langt út fyrir landsteinana, bankarnir hafa aldrei staðið betur og framkvæmdir eru miklar hvert sem litið verður.

Þegar svona vel gengur er ljóst að eitt gerist: Sumir hækka hraðar og meira í launum en aðrir. Þeir sem sitja á toppi vaxandi fyrirtækja eða eiga hlutabréf í fyrirtækjum sem þenjast út eru að vaxa hlutfallslega mun hraðar í tekjum en þeir sem vinna launuð störf og þurfa að láta sér almennan vöxt launa og almenna bætingu kaupmáttar nægja. Þetta er einfaldlega það sem gerist í hagkerfi í hröðum vexti, en ekki í löndum eins og Kúbu, Norður-Kóreu, Frakklandi og Þýskalandi.

Margir vilja samt meina að þessi vaxandi munur á tekjum einstakra manna sé eitthvað slæmur í sjálfu sér. Margir sem safna saman tölfræði um laun á Íslandi vilja meina að vaxandi munur á launum einstakra manna og launum allra annarra sé eitthvað slæmur í sjálfu sér.

Hugtakið „skipting launa“ er gjarnan notað til að lýsa launaþróun á Íslandi og um leið er gefið skyn að laun séu föst stærð sem þarf að skipta upp, og þá helst þannig að enginn fái stærri hlut af kökunni en annar. Engin raunveruleg „skipting launa“ getur hins vegar átt sér stað í frjálsu markaðssamfélagi.

Samanburður á launum tveggja einstaklinga, eða einhverra heimatilbúinna flokka einstaklinga, er marklaus reikningur sem segir ekkert til um velmegun, kaupmátt og almenn lífskjör í samfélagi. Eða hvað? Jú líklega segir sá reikningur til um eitthvað, en á annan hátt en margir vilja meina: Vaxandi tekjumunur í frjálsu markaðssamfélagi þýðir að velmegun og almenn lífskjör eru að þróast á rétta leið, með hinum fáu að græða stjarnfræðilega á framtakssemi og fjárfestingum, og hinum mörgu að njóta afraksturins með auknum atvinnumöguleikum, hækkandi launum og fjölgun tækifæra.

Geir Ágústsson kl. 16:21