« Til hamingju með 1. maí | Aðalsíða | Um afturhalds-, íhalds- og framaramenn »
2. maí 2006
Skýrsla um sveitarstjórnir
Í tilefni sveitarstjórnarkosninga í vor hefur Frjálshyggjufélagið sent frá sér tillögur til bættrar stjórnunar sveitarfélaga. Skjalinu er ætlað að vera almennur leiðarvísir fyrir núsitjandi og verðandi sveitarstjórnarmenn á Íslandi og brjóta upp einhæfa umræðu á Íslandi sem oftar en ekki snýr að auknum afskiptum eða niðurgreiðslum ákveðinna hópa á kostnað allra annarra.
Nokkrar hugmyndir er lúta að auknu einkaframtaki og lægri skattbyrði eru nefndar og bent er á ítarefni sem m.a. fjallar um jákvæða reynslu minnkandi opinberra afskipta annars staðar í heiminum.
Frjálshyggjufélagið hvetur til opinnar og víðsýnnar umræðu um hlutverk sveitarfélaga á Íslandi. Æ meir er talað um að sveitarfélög séu þjónustufyrirtæki en félagið telur að slík viðhorf séu óheppileg. Þjónustufyrirtæki og hið opinbera eru tvö mjög ólík fyrirbæri sem starfa á gjörólíkum forsendum.
Skjalið má sækja hér.
Texti þessarar færslu er tekinn af heimasíðu Frjálshyggjufélagsins.
Geir Ágústsson kl. 20:50