« Varúð! Kosningar nálgast! | Aðalsíða | Til hamingju með 1. maí »
1. maí 2006
Í nafni fjórða valdsins
Hinum frjálsu fjölmiðlum er sundrað eins og loftsteinum um leið og þeir nálgast brot af stærð Helstirnisins, ríkisfjölmiðilsins.
Helstirnið stækkar á meðan geislabyssur fjölmiðlalaganna splundra öllu sem einhverjum óþægindum getur valdið.
Inni stendur Svarthöfði og horfir út í geiminn. Hann baðar út öllum þremur örmum ríkisvaldsins og hlær djúpum og hægum hlátri illskunnar.
Hann hugsar með sér og glottir.
Fyrst ég gat þetta í nafni fjórða valdsins og tjáningarfrelsis...
Oddgeir Einarsson kl. 00:44