« Bara pínulítill skattur... | Aðalsíða | Bensínafgreiðlumenn í Listasafni Íslands »

30. maí 2006

Hvað þýðir gjaldfrjáls leikskóli?

Margir frambjóðendur til sveitarstjórna hafa lofað enn frekari niðurgreiðslum á leikskólagjöldum á kostnað allra sem hvorki eiga börn né hafa áhuga á að senda börn sín í uppeldisstofnanir hins opinbera fyrr en lög kveða á um. Hinar auknu niðurgreiðslur munu þrýsta á skattahækkanir. Skattahækkanir neyða fólk til að vinna lengur til að endar nái saman. Þegar fólk er byrjað að vinna lengur eykst þörfin á dagvistun fyrir börnin. Gjaldfrjáls leikskóli þýðir í stuttu máli að leikskóla er nánast laumað inn um bakdyrnar sem fyrsta skólastiginu. Valið er tekið af foreldrunum á enn einni vígstöðinni því stjórnmálamenn telja að gjaldfrjáls leikskóli þýði atkvæði.

Nær væri að sveitafélög myndu lækka útsvör sín, bjóða út rekstur leikskóla sinna og hætta millifærslum í nafni barnafjölskyldna. Uppistaðan í skattstofnum hins opinbera kemur úr vösum sama fólks og er reynt að kaupa í kosningum með niðurgreiðslum og gjaldfrelsistali. Þeir „ríku“ eru ekki að niðurgreiða nokkurn skapaðan hlut. Sú söluræða skattheimtumanna er fals og áróðursbragð. Gjaldfrjáls leikskóli þýðir þvingað „val“ sem í raun er ekkert val, heldur skólaskylda í dulbúningi sem neyðir foreldra til að eyða minni tíma með börnum sínum. Síðan hvenær er hlutverk hins opinbera að aðskilja foreldra frá börnum sínum?

Vonandi verður loforðið um gjaldfrjálsan leikskóla svikið illilega og svikin launuð ríkulega með haug af atkvæðum til svikaranna í næstu sveitarstjórnarkosningum.

Geir Ágústsson kl. 18:28