« Múrinn og kapítalismi | Aðalsíða | Mannréttindayfirlýsingin »

6. apríl 2006

Uppeldi barna

Í umræðu um menntun barna er oftast gengið út frá því sem föstum og óumdeilanlegum hlut að öll börn hafi jafnan rétt á námi. Ég er ósammála því þó ég vildi gjarnan að öll börn fengu sem besta menntun. Að mínu mati eiga börn rétt á því að foreldrar veiti þeim eins gott uppeldi og þeir eiga tök á. Stærðfræði, landafræði, lestur og skrift eru síður en svo aðalatriðið hér. Miklu meira máli skiptir að sýna þeim og þar með kenna þeim heiðarleika, hreinskilni, væntumþykju og ástúð. Ég get ekki fallist á að ríkið setji reglur um hversu mikið og hvernig foreldrar eigi að sýna börnum sínum ástúð, frekar en um aðra þætti uppeldis, sem oft eru kenndir við menntun.

Menntun barna er aðeins einn þáttur í uppeldi þeirra. Þess vegna á það að vera ákvörðun foreldranna hvernig menntun barnið fær, þ. á m. hvort hún er aðkeypt eður ei. Engin rök eru fyrir því að færa ákvörðunarvald um þetta með valdi (lögum) frá foreldri barns til einhverrar annarrar manneskju eða stofnunar.

Þeir sem hinsvegar trúa því að betra sé að ríkið ráði því hvernig börn séu alin upp en foreldrar þeirra ættu að íhuga hvort ekki megi setja fleiri ramma um uppeldi barna en gilda um svokallaða menntun. Er það í þágu jafnréttis að ekki séu öll börn alin nákvæmlega eins upp?

Oddgeir Einarsson kl. 15:46