« Gagnrýni á frjálsum markaði | Aðalsíða | Ofbeldi varið með ofbeldi. »
11. apríl 2006
Spurning dagsins
Á Íslandi má segja upp starfsfólki án skýringa. Á sama hátt getur starfsmaður sagt upp starfi sínu án skýringa. Þetta þekkja allir og telja vera sjálfsagt mál enda um gagnkvæman, frjálsan samning að ráða sem enginn gengur að gegn vilja sínum.
Í Frakklandi átti að reyna láta sama lögmál og við Íslendingar þekkja svo vel gilda um einstaklinga sem hafa ekki náð 26 ára aldri. Allt varð brjálað.
Á Íslandi er atvinnuleysi í mesta lagi þriðjungur af því sem gengur og gerist í Frakklandi, og raunar fleiri ríkjum Vestur-Evrópu þar sem æviráðningar eru teknar fram yfir ráðningar yfirleitt. Ætli eitthvað samhengi sé þarna á milli?
Geir Ágústsson kl. 20:30