« Athyglisverð hugmynd? | Aðalsíða | Fjölmiðlafrumvarpið »

24. apríl 2006

Sósíalískur sigur í Ungverjalandi, eða hvað?

Þingkosningum í Ungverjalandi um helgina lauk með því að sósíalistar og bandamenn þeirra náðu endurkjöri í ríkisstjórn. Fljótt á litið virðist það hljóma hræðilega fyrir Ungverja, og að þeir hafi látið heilla sig með loforðum um að allt verði niðurgreitt og að enginn muni borga. Þegar betur er að gáð virðist samt sem annað sé upp á teningnum. Á einum stað segir til dæmis:

Gyurcsany [forsætisráðherrann endurkjörni] segir að aðalmarkmið sitt verði að skapa borgurunum frið og öryggi, samhliða því að bæta samkeppnishæfni hins ungverska hagkerfis.
Þetta er ólíkt hinum dæmigerðu loforðum vinstrimanna sem oftar en ekki ganga út á efnahagslega jafnstöðu og aukin ríkisútgjöld. Á öðrum stað er ungversku kosningabaráttunni m.a. lýst með eftirfarandi orðum:
Stór hluti kosningabaráttunnar var litaður af hugmyndafræðilegum slagsmálum um óskir Sósíalistaflokksins um opnari markaði á meðan stjórnarandstaða íhaldsmanna óskaði eftir aukinni verndarstefnu.
Hljómar svolítið öfugsnúið, ekki satt?

Endurkjör sósíalista í Ungverjalandi er e.t.v. ekki eins slæmt og það lítur út á yfirborðinu. En vitaskuld bíðum við spennt eftir Múrs-grein sem útskýrir hvers vegna aukin fríverslun, öryggi og friður eru nú orðin slagorð vinstrimanna, á meðan viðskiptahaftir eru nú orðnar að baráttumáli hægrimanna.

Geir Ágústsson kl. 17:35