« Hinn hái garður vinstrimanna | Aðalsíða | Nasisti? »

20. apríl 2006

Rasismi og vinstrimennska

Í gær var frétt um mann sem hugðist stofna stjórnmálaflokk með það á stefnuskránni að takmarka möguleika útlendinga til að setjast að í landinu meira en þegar er í dag.

Það er bæði óréttlátt og óhagkvæmt að banna fólki að ráða yfir sér og sínu. Þess vegna er hverskonar rasísk löggjöf röng. Af sömu ástæðu er vinstristefna í pólitík röng stefna þar sem hún boðar íhlutun í líf fólks sem ekki hefur gert neinum illt.

Þess vegna finnst mér athyglisvert að sjá að það eru helst vinstrimenn sem hlaupa upp til handa og fóta þegar aðili stígur fram og vill stofna flokk sem takmarkar frelsi fólks til að setjast að á landinu. Slík ráðstöfun yrði bæði óréttlát og óhagkvæm, rétt eins og sú ráðstöfun sem vinstrimenn berjast fyrir.

Sósíalismi og ofurþjóðernishyggja eru hvort um sig hættulegar og óréttlátar stefnur. Hin eitraða blanda væri eflaust þjóðernissósíalismi, eða á ensku nationalsosialism, stytt sem nasism.

Fólk ætti að varast að trúa málflutningi þjóðernissinna og vinstrisinna og leiða hjá sér svívirðingar þessarra tveggja hópa í garð hvors annars. Frjálshyggjumenn eru alltaf hlynntir frelsi allra en ekki bara þegar það samræmist pólitískri rétthugsun í tengslum við minnihlutahópa.


Oddgeir Einarsson kl. 17:04