« Spurning dagsins | Aðalsíða | Lýðræðissinnar athugið! »

11. apríl 2006

Ofbeldi varið með ofbeldi.

Franska ríkið heimilar ekki fólki að semja sín á milli um að vinna fyrir hvert annað nema annar aðili samningssambandsins taki á sig þyngri byrðar en hann getur borið. Með þessum óréttmætu afskiptum af friðsamlegum samningum fólks hefur franska ríkisvaldinu tekist að koma á auknu atvinnuleysi í landinu. Það er staðreynd. Þessu atvinnuleysi er bein afleiðing ofbeldis franska ríkisins.

Til þess að allir lesendur skilji hugtakanotkunina þá er það ofbeldi ef einhver er fenginn með valdi (t.d. hótun um ofbeldi, fésekt eða fangelsi) til að gera eitthvað eða láta eitthvað ógert, án þess að hafa gert á hlut annars manns. Frönskum vinnuveitendum er bannað að ráða starfsfólk með fyrirvara um að því geti verði sagt upp störfum ef harðnar í árinni í rekstrinum. Franska atvinnulöggjöfin var því ofbeldi af hálfu ríkisins.

Nú, þegar franska ríkisstjórnin ætlaði að fá samþykkt lög um að létta örlítið á afskiptum af samningafrelsinu, og draga með því úr ofbeldinu gegn saklausum samningsaðilum á vinnumarkaði, þá hófu hópar fólks ofbeldisaðgerðir. Lestarsamgöngur voru stöðvaðar, rúður brotnar, bílar eyðilegðir ofl. Endaði þetta með því að hin lýðræðislega kjörna ríkisstjórn Frakka hætti við áform sín um að aflétta vinnulöggjafarofbeldinu.

Með því var ofbeldi ríkisins viðhaldið með ofbeldi óbreyttra borgara.

Oddgeir Einarsson kl. 22:05