« Rasismi og vinstrimennska | Aðalsíða | Bensín »

20. apríl 2006

Nasisti?

Nasimsi er sósíalismi
Múrverjar eru krúttlegir í dag og skrifa:

Þjóðernissinni er krúttlegra heiti á nasista.
Við þetta má bæta að orðið „nasisti“ (á þýsku) er upprunulega stytting fyrir meðlimi flokksins sáluga, Nationalsozialistische deutsche Arbeiter-Partei (Þjóðernissósíalíski verkamannaflokkur Þýskalands). Nasisti er þjóðernissósíalisti og í rótina engu frábrugðinn þeim sósíalistum sem núlifandi vinstrimenn mæra og ríkja yfir löndum eins og Kúbu, Venezúela og Norður-Kóreu.

Múrverjar eru krúttlegir að minna okkur á að alræðisstefnur og stjórnlyndi á ekki að fela á bak við nútímaleg og tilpússuð orð.

Myndin er tekin héðan, og þangað mæli ég með því að allir skelli sér í gott lesefni.

Geir Ágústsson kl. 20:47