« Nasisti? | Aðalsíða | Athyglisverð hugmynd? »
21. apríl 2006
Bensín
Það er eðlilegt að lækka vörugjöld af bensíni, ekki sérstaklega vegna verðhækkana heldur vegna þess að það er almennt æskilegt að lækka opinber gjöld og skatta. Í dag hirðir ríkið rúmlega helming þess sem fólk greiðir fyrir bensín.
Hér til hliðar má sjá hvernig útsöluverð bensíns í sjálfsafgreiðslu hjá Esso í dag er myndað. Innifalið í verðinu er vörugjald og sérstakt vörugjald, auk virðisaukaskatts sem leggst ofan á þá liði auk innkaupsverðs og álagningar olíufyrirtækjanna. Einnig má sjá, hvað áætla má að bensínið myndi kosta ef vörugjald og sérstakt vörugjald yrðu felld niður og innkaupsverð og álagning stæði í stað.
Einu skynsömu rökin með sérstökum vörugjöldum á bensín eru þau að með þeim greiði bíleigendur fyrir endurnýjun vegakerfisins. Að menn séu að greiða fyrir notkun sína á vegum. En raunveruleikinn er sá að menn greiða ekki í hlutfalli við notkun sína, heldur miklu meira. Þeir fjármunir sem íbúi í Reykjavík greiðir renna ekki aðeins til viðhalds og mannvirkjagerðar á því svæði sem hann notar bílinn á, heldur renna þeir einnig í ýmiskonar framkvæmdir sem eru honum alfarið óviðkomandi s.s. jarðgangnagerð og aðrar kostnaðarsamar framkvæmdir. Því er æskilegt að leita annarra leiða til að menn greiði kostnað af notkun sinni. Enda er óréttlátt að fólk greiði fyrir vegaframkvæmdir sem eru þeim óviðkomandi.
Sævar Guðmundsson kl. 15:07