« Bensín | Aðalsíða | Sósíalískur sigur í Ungverjalandi, eða hvað? »
23. apríl 2006
Athyglisverð hugmynd?
Greinin Umhverfisvæna orkubyltingin á heimasíðu Ungra Vinstri-grænna er athyglisverð hugleiðing um orku og orkugjafa. Vafasamar fullyrðingar eins og, [koldíoxíð] á stóran þátt í aukningu gróðurhúsaáhrifa og hættulegrar hitabreytinga vaða auðvitað uppi eins og ekkert sé sjálfsagðara, en þegar öllum áróðrinum sleppir tekur við áhugaverð upptalning á orkugjöfum sem fela ekki í sér brennslu jarðefnaeldsneytis (með beinum hætti). Til dæmis, í kaflanum um metanól, segir:
Með því að safna öllu afgasi frá núverandi stóriðju á Íslandi væri mögulegt að framleiða allt að 450.000 tonn af metanóli á ári. Til þess þyrfti 3,7 teravattstundir af raforku á ári til viðbótar því sem nú er framleitt í landinu.Þarna er því sleppt út að til að framleiða vetni (annað tveggja hráefna metanólframleiðslunnar) þarf rafmagn, og með því að auka eftirspurnina eftir raforku á Íslandi þarf annaðhvort að auka framleiðslu hennar (fleiri stóriðjur og jarðorkuver) eða hækka verðið (sem neytendur og fyrirtæki munu þá finna fyrir).Notkun 450.000 tonna af metanóli í stað sama magns af innfluttu bensíni og olíu myndi leiða til þess að heildarútstreymi koltvíoxíðs á Íslandi af mannavöldum minnkaði niður í 43% af því sem það var 1995. Jafnframt yrði stóriðja á Íslandi að mestu umhverfisvæn.
En hvað sem því líður er ljóst að þessi vangavelta er ekkert annað en viðskiptahugmynd sem má líklega skoða alvarlega nú á tímum síhækkandi olíuverðs. Telji einhver að um hagkvæman rekstur sé að ræða er viðkomandi í lófa lagt að hefja hann og selja orkuna á frjálsum markaði. Verri leið til að hefja rekstur er að biðla til stjórnmálamanna um að sleppa hinu opinbera inn á orkumarkaðinn. Slíkt er ávísun á að hið óhagkvæma lifi af óhagkvæmnina, og að hið hagkvæma líði fyrir það.
Geir Ágústsson kl. 20:08