« Þinn vilji er þinn að framfylgja | Aðalsíða | Frekir frakkar »
16. mars 2006
Um fóstureyðingar og frjálshyggju
Mikil ringulreið hefur nú gripið um sig í kjölfar skrifa Hlyns Jónssonar, frjálshyggjumanns, á vef Ungra frjálshyggjumanna. Fyrirsagnir eins og Frjálshyggja og fóstureyðingar og fullyrðingar eins og að [u]ngir frjálshyggjumenn á www.uf.is [hafa] tekið upp stefnu bandarískra repúblíkana og vilja banna fóstureyðingar í nánast öllum tilfellum lýsa ruglingnum í umræðunni. Þótt frjálshyggjumenn deili allajafna minna um grundvallaratriði hugmyndafræði sinnar en t.d. nútímalegir vinstrimenn þá eru fóstureyðingar efni sem getur fallið beggja megin borðsins. Jafnvel þótt sömu grundvallarviðhorf til einstaklingsfrelsis og sjálfseignarrétts séu til staðar meðal þeirra frjálshyggjumanna sem deila.
Nú skal gerð tilraun til að halda í höndina á þeim sem hafa ruglast í ríminu.
Allir frjálshyggjumenn vilja meina að allir einstaklingar hafi fullkominn og óskoraðan rétt til að ráða eigin líkama. Allir frjálshyggjumenn trúa á óskoraðan sjálfseignarrétt einstaklingsins (á meðan einstaklingurinn virðir sama rétt annarra, a.m.k. í verki). Frjálshyggjumenn deila eingöngu um hvenær einstaklingur er orðinn til í móðurkviðnum, rétt eins og læknar, prestar, sálfræðingar, taugasérfræðingar og jafnaðarmenn. Persónulega hallast ég að því að kona eigi að geta fjarlægt hvað sem er úr líkama sínum hvenær sem hún óskar þess. Í tilviki fósturs er það svo undir öðru komið en hvað viðkomandi kona setti á kjörseðilinn sinn sem ræður því hvort fóstrið lifir sem sjálfstæður einstaklingur án naflastrengsins, eða hvort um afætu, sníkjudýr, frumuklasa eða annað var að ræða sem hún tók úr sér.
Sumir frjálshyggjumenn telja að móðirin hafi samþykkt notkun frumuklasa (síðar fósturs, síðar barns) á líkama sínum með því að gefa honum líf og vaxtarskilyrði. Sumir frjálshyggjumenn telja að óléttur kvenmaður hafi óskorað vald yfir því sem vex í eða lifir af líkama hennar, óháð því hvort frumuklasi eða fóstur geti lifað af fæðingu eða ekki.
Grundvallaratriðið er samt hið sama hjá öllum frjálshyggjumönnum: Að einstaklingar eigi líkama sinn og hafi yfir honum óskorað vald á meðan þeir virða frelsi annarra til hins sama. Frjálslegar fyrirsagnir og vafasamar samlíkingar breyta þar engu. Appelsínuunnendur eru ekki allir á móti eplum þótt grein eins slíks um ókosti og vont bragð epla hafi náð athygli eplaelskandi fjöldans.
Geir Ágústsson kl. 17:02