« Hvað er list? | Aðalsíða | Skattar á tóbak = skattar á lágtekjufólk »

3. mars 2006

Til hamingju með að þurfa ekki að banna reykingar!

Samkvæmt frétt RÚV sýnir ný könnun Gallup að tæp 90% aðspurðra myndu fara jafnoft eða oftar á veitingastaði og kaffihús ef staðirnir væru alveg reyklausir.

Þetta þýðir að áhugamenn um reyklausa staði geta lagt á hilluna áætlanir um að banna reykingar á öllum stöðum. Ef eitthvað er að marka könnun Gallup þá myndi fólk frekar auka heimsóknir sína á þá staði sem sjálfir bönnuðu reykingar sínar en hitt. Það væri einungis ef kannanir sýndu að fólk vildi frekar sækja reykingarstaði sem nauðsynlegt væri að banna reykingar á öllum stöðum til þess að tryggja „réttinn“ til að djamma og drekka kaffi á einkaeign annarra í reykleysi.

Oddgeir Einarsson kl. 15:50