« Hægrimenn og loftslagsbreytingar | Aðalsíða | Þinn vilji er þinn að framfylgja »

14. mars 2006

Sænsk pólítík

Í Svíþjóð kennir margra áhugaverðra pólitískra grasa. Hér er bent á fjórar sænskar pólitískar vefsíður, sem flestar eru þó einungis á sænsku.

RKU.nu er vefsíða Byltingarsinnaðrar kommúnistaæsku. Hefðbundin rauðlituð baráttumerki bolsévíka eru þar í hávegum höfð. Á götum Svíþjóðar má sjá, frá þessum hópi, veggspjöld þar sem barist er fyrir sjálfsögðum rétti fólks til heilsdagsvinnu. Sá réttur er ræddur af alvöru í sænskum umræðuþáttum og sýnist vitanlega sitt hverjum.

Kommunistiskapartiet.org er vefsíða sænska Kommúnistaflokksins. Þeir virðast leggja sérstaka áherslu á óréttmæti stríðsins í Írak og útgöngu úr Evrópusambandinu en sérstaklega þó jafnrétti kynjanna. Sérstaka athygli vekur grein þar sem mýtan um morð Stalíns á eigin fólki er hrakin í löngu máli.

Sverigedemokraterna.se er vefsíða Sænska lýðræðisflokksins. Sá flokkur hefur á stefnuskrá sinni að snúa við fjölmenningarþróuninni í Svíþjóð, herða fangelsisrefsingar, koma á ráðuneyti öldrunarmála og stemma stigu við aukinni valdtöku Evrópusambandsins.

Toppkandidaterna er raunveruleikaþáttur á vegum sænska ríkisútvarpsins. Þar keppa pólitískir ungliðar um hylli áhorfenda með ýmsum leiðum, aðallega lýðskrumi. Þáttaröðin er búin, en hægt er að sjá margt úr þessum þáttum á netinu. Petter, sem vann keppnina með nokkru forskoti, studdi m.a. hugmyndir um 6 tíma hámarksvinnudag. Þættirnir vekja upp margar spurningar um stjórnmál og ungliða í pólitík.

(Góð sænsk orðabók á netinu er hér.)

Gylfi Ólafsson kl. 13:03