« UJ og verðlag | Aðalsíða | Óréttlætanleg afskipti ESB af rekstri fyrirtækja »
28. mars 2006
Sjálfelska eða sjálfsögð varkárni?
Múrinn er einkar geðþekkur í dag. Pistill dagsins fjallar um fuglaflensuna og móðursýkina sem hefur fylgt henni og setur greinarhöfundur hana í samhengi við ýmsa aðra sjúkdóma sem ríkir Vesturlandabúar heyra lítið um en eru í raun plága í mörgum heimshlutum, t.d. berklar. Tilvitnun:
Fuglaflensan er vissulega ískyggileg ef horft er á hana eina og sér, aðgát er sjálfsögð og það er út af fyrir sig gott ef allir eru tilbúnir að leggjast á eitt til að hún verði ekki að heimsfaraldri. En þá er líka nauðsynlegt að nálgast málið af sæmilegri yfirvegun og hafa staðreyndir til hliðsjónar. Þær hafa áreiðanlega ekki verið ofarlega í huga íslenska embættismannsins sem velti því upp að láta her manns með byssu um öxl taka á móti farfuglunum að vori til að draga úr smithættu.Skemmtilegt skot á dæmigerðan viðbúnað hins opinbera þegar einhver hætta eða hætta á hættu vofir yfir. En hvað um það. Fuglaflensan er töluvert minna vandamál en margt sem fær töluvert minni athygli. HIV og eyðni, berklar, svarti dauðinn sem enn lifir í sumum heimshlutum, næringar- og vatnsskortur (grein um vatnsskort), og gamalkunnugir vinir evrópskra vinstrimanna, viðskiptahaftir og tollamúrar - þetta eru hinar raunverulegu hættur sem steðja að heilsu og lífi mannkyns. Fuglaflensan, gróðurhúsaáhrifin, kynjakvótar og áframhaldandi fjáraustur í vasa spilltra stjórnmálamanna í nafni þróunaraðstoðar - þetta eru vandamál, raunveruleg eða ímynduð, sem eiga hug Vesturlandabúa og blaðamanna meðal þeirra. Þetta eru einnig þau vandamál, raunveruleg eða ímynduð, sem við eyðum hvað mestum fjármunum í að leysa eða fela (meira um það hér). Fyrir vikið fá hin raunverulega stóru vandamál að sitja á hakanum.
En hvernig eiga Vesturlandabúar svo að haga sér gagnvart fátæktarsjúkdómum eins og berklum, malaríu og hungurdauða? Ein leið væri sú sem Vesturlandabúar fóru sjálfir og virðist virka ágætlega fyrir þá sem hana velja: Að taka upp kapítalískt markaðshagkerfi með tilheyrandi stórkostlegri auðsköpun og vexti í almennum lífsgæðum. Varla telst það til tilviljunar að samfélög lögvarins eignarréttar og frjálsra viðskipta séu jafnframt samfélög góðra lífsgæða og velmegunarsjúkdóma, og að þar séu jafnframt þeir sem fylla flokk náttúruverndarsinna og annarra afsprengja auðs, lúxusvarnings og kapítalisma.
Fuglaflensan er auðvitað slæm og sjálfsagt er að hafa varann á með hana eins og annað. En stóra myndin má ekki líða fyrir fjölmiðlafárin sem Vesturlandabúar hræða sjálfa sig með. Slíkt kemur fyrst og fremst til með að skaða þá sem eru enn lokaðir bak við múra sósíalisma, sjúkdóma og hungurs, og því þarf að kippa í liðinn sem fyrst.
Geir Ágústsson kl. 16:16