« Sjálfelska eða sjálfsögð varkárni? | Aðalsíða | Leigubílagrín »
30. mars 2006
Óréttlætanleg afskipti ESB af rekstri fyrirtækja
Því miður eru tollar, styrkir og þvinganir þau hugtök sem manni dettur fyrst í hug þegar talað er um Evrópusambandið. Evrópubúar hafa flestir því miður ekki áttað sig á mikilvægi frelsis þegar kemur að lífsgæðum, en þá er sú trú ríkjandi að stjórnvöld geti komið til bjargar og þvingað á fullkomið samfélag. Samfélag þar sem allir eru í millistétt og hafa „mannréttindi" til þess að geta keypt Windows stýrikerfið án þess að það „þvingi" mann til þess að taka við öðrum forritum, eins og t.d. Windows Media Player. ESB hefur ákveðið að Microsoft sé með of góðan sölupakka, svo góðan að önnur fyrirtæki hafa ekki möguleika á því að selja vörur í jafnmiklum mæli og risinn hans Bill Gates. Þess vegna er tekið upp á því að þvinga Microsoft til þess að takmarka fjölda forrita sem fylgja næsta stýrikerfi þeirra, ef þeir fara ekki eftir því mega þeir búast við sektum sem enda í vösum evrópska þrýstihópa eins og bænda eða fátækra múslima sem hrópa mismunun. Slík afskipti eru ekki réttlætanleg enda neyðir Microsoft engan til þess að kaupa stýrikerfið þeirra.
Ekki á að refsa Microsoft fyrir að vera leiðandi í tölvugeiranum þar flestir kjósa þeirra vörur, sama hvort þær séu seldar stakar eða saman í stýrikerfi eða pakkatilboðum. Sem betur fer fæddist Bill Gates í landi tækifæranna sem hefur meðal annars gefið honum það frelsi til að stofna hjálparsamtök sem hafa á rúmum áratugi styrkt ýmis góð málefni ( t.d. menntun eða HIV baráttuna) um 10 milljarða dollara. Evrópubúar og þá sérstaklega hérna í Skandínavíu telja að lífið gerist ekki betra en í Evrópu, Bandaríkjamenn hafa það verra vegna þess að þeir þurfa að kaupa sjúkratryggingu og borga fyrir háskólanám úr eigin vasa. Ef að lífið er svona fullkomið í Evrópu af hverju eru þá þrefalt fleiri heimilislausir innan ESB en í Bandaríkjunum? Af hverju hafa margfalt fleiri störf skapast í Bandaríkjunum en í Evrópu seinustu áratugina? Og strax er byrjað að undirbúa næstu óréttlætanlegu árás, þvinga símafyrirtæki í Evrópu til þess að lækka verð fyrir notkun farsíma erlendis. Við Íslendingar þurfum ekki einu sinni að ganga í ESB til þess að taka þátt í þvinguninni, búist er við því að hún laumist inn í EES-samninginn í náinni framtíð.
Bæði OgVodafone og Síminn hafa gripið gæsina og lýst því yfir að fyrirtækin fagni þessari breytingu, þó að þau hafi áður haft frelsi til þess að lækka verðskrár sínar án þvingana. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra vonast til þess að Ísland verði hluti af Evrópusambandinu árið 2015, sem betur fer er mjög ólíklegt að hann verði ennþá forsætisráðherra þegar að því kemur. Einnig er líklegt að takmörkunaræði sambandsins endi með því að það verði ekki í boði fyrir okkur að ganga í sambandið ef við bíðum of lengi, hræsnin við þetta allt saman er að ein slík takmörkun gæti bjargað okkur frá stærri og verri takmörkunum sem sósíalistunum í Evrópu gæti dottið í hug í framtíðinni. Það er nógu slæmt að slíkir menn skiptist á að leiða Sameinuðu Þjóðirnar.
Hallgeir Jónsson kl. 09:54