« Óréttlætanleg afskipti ESB af rekstri fyrirtækja | Aðalsíða | Múrinn og kapítalismi »

31. mars 2006

Leigubílagrín

Stundum þarf ekki annað en að kíkja í lög og reglugerðir til að finna góða brandara. Einn slíkan rakst ég á í gærkvöldi í reglugerð um leigubifreiðar nr. 397/2003 Í 25. gr. reglugerðarinnar eru ábúðarmikil ákvæði um eðalvagna sem af einhverju ókunnu tilefni hafa orðið tilefni reglusetningar stjórnvalda.

Í ákvæðinu er það rakið að enginn megi aka öðrum manni í eðalvagni nema að uppfylltum ströngum skilyrðum og að fengnu leyfi stjórnvalda. Restin af brandaranum segir sig síðan eiginlega bara sjálf, að viðbættum feitletrunum mínum:

Þjónusta eðalvagna er sérhæfður leiguakstur fólksbifreiða og fellur undir 2. mgr. 1. gr. laga um leigubifreiðar. Til eðalvagna teljast glæsilegar fólksbifreiðar sem flutt geta 4-8 farþega með skilrúmi á milli bílstjóra og farþegarýmis. Slíkar bifreiðar skulu búnar sérþægindum fyrir farþega. Eðalvagnar skulu ekki stunda almennan leiguakstur, heldur aðeins notaðir til sérstakrar viðhafnarþjónustu.

Eðalvagna má einungis nota til aksturs farþega gegn gjaldi samkvæmt fyrirfram gerðri pöntun á þjónustu þeirra. Eðalvagn skal ávallt leigja út með ökumanni.

Stjórnlynt fólk vill oft „almennar reglur“ um hitt og þetta, þ.e. boð og bönn. Ég efa það ekki að slíkt fólk sé til í röðum sem getur fært rök fyrir því t.d. að ef leigubíll er svo flottur að hann teljist allt í einu „glæsilegur“ þá megi hann bara nota til aksturs farþega gegn gjaldi ef viðkomandi pantar hann fyrirfram. Nákvæmlega eins bíll sem er flottur en bara ekki alveg „glæsilegur“ má hins vegar nota til að keyra sauðsvartan almúgan hvar sem er og hvenær sem er. Já, ímyndið ykkur bara hvað gerðist ef glæsikerrur væru notaðar til aksturs ÁN ÞESS að þær væru pantaðar vel fyrirfram og með góðum fyrirvara. Þá er nú öruggara að láta druslurnar um að skutla þessu liði frá A til B.

Ég nenni ekki að tala um það að ríkir úthluti einokunarpössum til fólks sem vill starfa við að skutla öðru fólki á milli staða. Það er bara ekki fyndið. Ekki fyrir þá sem hafa orðið veikir í leigubílaröðinni.

Oddgeir Einarsson kl. 13:58