« Vatnsréttindi | Aðalsíða | Afstaða Jóns Baldvins »
20. mars 2006
Landið undir hernum
Það er ótrúlegt að fylgjast með fólki, þ. á m. stjórnmálamönnum, spekúlera hvað sé best að gera við svæðið á Miðnesheiði sem bandaríski herinn er að yfirgefa.
Menn tala um hugmyndasamkeppnir og nefndir til að finna bestu lausnina.
Lausnin er sú að láta alla þá sem hafa hugmyndir að nýtingu landsins keppa sín á milli í útboði um svæðið í heild.
Þannig geta menn verðlagt hugmyndir sínar um kvikmyndagerðarþorp, þekkingarþorp, íbúabyggð, iðnaðarstarfsemi, eða hvað það nú er, og sá fær svæðið til nýtingar sem telur það mest virði og greiðir fyrir það.
Síðan er unnt að lækka skatta eftir því sem hærra verð er greitt fyrir svæðið.
Oddgeir Einarsson kl. 11:57