« Enn um óvæntan skilning frá vinstri | Aðalsíða | Hægrimenn og loftslagsbreytingar »

12. mars 2006

Jafnrétti og jöfn staða

Staða kynjanna í lagalegu tilliti er svo til hin sama. Aftur á móti hafa ýmsir réttilega bent á að staða kynjanna í samfélaginu er um margt ójöfn og spilar þar ýmislegt inn í, svo sem viðtekin gildi og viðhorf í samfélaginu sem valda því að komið er fram við kynin á ólíkan hátt.

Eitt dæmi um ólík viðhorf eru svohljóðandi ummæli Valgerðar Sverrisdóttur um blaðamann nokkurn sem hafði gagnrýnt hana í starfi:

Ég er hins vegar ekki sú manngerð sem læt þennan karl vaða yfir [...].

Í almennri umræðu tíðkast að nota orðin „kona“ og „maður“ þegar verið er að vísa til tiltekinna einstaklinga. Sjaldgæfara er að sjá talað um „karla“ og „kerlingar“ í þessu sambandi. Ég er til dæmis viss um að Halldór Ásgrímsson, flokksbróðir Valgerðar, fengi ansi bágt fyrir ef hann vísaði til Agnesar Bragadóttur sem „þessarar kerlingar".

Af þessu má draga þann lærdóm að staða kynjanna er ekki alltaf jöfn, þótt jafnrétti sé í landinu. Við því eru eflaust ýmsar leiðir til úrbóta. Boð og bönn með fulltingi löggjafarvaldsins eru ekki ein þessara leiða. Hvorki varðandi það sem hér var nefnt né önnur tilvik þar sem kyn hefur áhrif á stöðu einstaklinga.

Oddgeir Einarsson kl. 12:53