« Sænsk pólítík | Aðalsíða | Um fóstureyðingar og frjálshyggju »
15. mars 2006
Þinn vilji er þinn að framfylgja
Ef einstaklingur B telur að markaðurinn sé ekki að greiða einstaklingi A næg laun þá er B fullkomlega frjálst að blanda sér í leikinn og útvega mismuninn. Hann er ekki hindraður í þeirri viðleitni sinni af einhverju skrýmsli sem kallast markaðurinn.Þessi orð mælti mikill snillingur í grein árið 1960 og vitaskuld eiga þau enn við í dag. Alltof oft heyrist í vel launuðum verkalýðsforingjum og strengjabrúðum þeirra á Alþingi sem telja að markaðurinn eigi að borga þessum og þessum hin og þessi laun og vitaskuld hafa þeir leyfi til að hafa þá skoðun. Þeir vilja hins vegar bregða á það ráð að beita löggjafanum, lögreglunni og hinu opinbera gegn atvinnurekendum og þvinga þá til að greiða eitthvað annað en launamenn sömdu um. Og senda síðan reikninginn á alla aðra.
Ofanrituð tilvitnun setur samt allt svona tal í sitt rétta samhengi. Þeir sem telja að hin og þessi störf eigi að vera launuð með hinum og þessum launum geta alveg gripið inn í með því að greiða mismuninn á greiddum og launum og þeim sem óskað er eftir. Að sama skapi getur sá sem telur launþega í tiltekinni atvinnugrein vera undirborgaða einfaldlega hafið eigin rekstur og laðað til sín þá bestu með hærri launum. Því miður er slík trú vinstrimanna og verkalýðsforkólfa á eigin hæfileikum til fyrirtækjareksturs af skornum skammti. Mun auðveldara er að hrópa hátt og vona að atkvæðin fylgi á eftir.
Geir Ágústsson kl. 19:23