« Jafnrétti og jöfn staða | Aðalsíða | Sænsk pólítík »

13. mars 2006

Hægrimenn og loftslagsbreytingar

Hægrimenn virðast hafa sérstakan áhuga á að rífast við vinstrimenn um loftslagsbreytingar. Vef-Þjóðviljinn er þar sérstaklega ötull, nýlega hefur Illugi Gunnarsson bergmálað raddir efasemdamanna og fleiri má til taka.

Margir sem taka þennan pól í hæðina vísa í danska tölfræðinginn Björn Lomborg. Hann ritaði á sínum tíma bókina Hið sanna ástand heimsins, sem komið hefur út á íslensku, þar sem hann færði rök fyrir tvennu. Annarsvegar að ástand heimsins væri alls ekki eins slæmt og af fréttaflutningi mætti ráða og hinsvegar að sleppa verði tilfinningum og fljótadómum þegar vandamál jarðarinnar eru leyst. Björn kom saman, með fulltingi ýmissa virtra aðila eins og The Economist, ráðstefnu undir nafninu Copenhagen Consensus þar sem aðgerðum til bjargar mannkyninu var raðað í röð eftir fjárhagslegri skilvirkni þeirra; það er að efst á blaði eru þær aðgerðir sem bjarga flestu fólki fyrir sem minnstan pening.

Efst á listanum eru verkefni eins og barátta gegn eyðni, vítamíngjafir og vítamínbæting helstu nauðþurfta fátækra, afnám viðskiptanhindrana og varnir gegn malaríu. Kyoto sáttmálinn og hindrun á losun koltvísýrings er þar á lista yfir vond verkefni.

Hægrimenn ættu að hætta að rífast um loftslagsbreytingar. Þegar þeir gera það lyktar málflutningur þeirra oft af því að þeir gefi sér niðurstöðuna fyrirfram og finni vísindi og rannsóknir því til stuðnings. Það er alltaf hægt, enda loftslagsrannsóknir flókið fyrirbæri. Það er ekki fyrr en margar rannsóknir koma saman sem heillega mynd er hægt að gera sér af ástandinu.

Ég veit ekkert um gróðurhúsalofttegundir, sólgos eða endurskin sólarljóss af gastegundum og get ekki rifist við sérmenntaða vísindamenn um loftslagsbreytingar. En ég get hinsvegar bent á að það er ekki endilega það besta sem við gerum til að bjarga heiminum að hlaupa upp til handa og fóta og setja plastpoka á öll heimsins púströr. Þegar fólk er orðið sammála um það getur umræðan fyrst orðið uppbyggileg.

Gylfi Ólafsson kl. 12:11