« Landið undir hernum | Aðalsíða | Happdrættið sem enginn vinnur í »
20. mars 2006
Afstaða Jóns Baldvins
Stundum er verið að berja fólk niður í miðbænum. Fæstir skipta sér af slíku þótt að um saklaus fórnarlömb geti verið um að ræða. Ástæðan er sú að afskiptum fylgir sú áhætta að verða sjálfur fyrir árás. Sú áhætta væri þó hverfandi ef fjöldinn hjálpaði þeim fáu sem reyna að stöðva ofbeldið og stilltu sér upp þeim við hlið. Það er ekki göfugt að standa hjá, vegna persónulegra hagsmuna, og láta aðra reyna að stöðva herlegheitin.
Bandaríkjamenn eyða mikilli orku í að reyna að stöðva hryðjuverk. Ætli efasemdir Jóns Baldvins Hannibalssonar um aukið samstarf við Bandaríkjamenn við að uppræta hryðjuverk, vegna „þjóðarhagsmuna Íslands“, sé af göfugum rótum runnar?
Oddgeir Einarsson kl. 21:28