« Íslenska ríkið er ekki umburðarlynt gagnvart tjáningu um trúarbrögð | Aðalsíða | Til pólitíska rétttrúnaðarsafnaðarins »

5. febrúar 2006

Um aðgerðir hins opinbera

Ari Björnsson, stjórnarmaður í Heimdalli, kveður upp heróp í nýjasta pistli sínum á frelsi.is

Við þurfum að grípa til aðgerða til að vernda hátækniiðnað okkar því fjárhagsstaða þessara fyrirtæki fer höllum fæti dag frá degi.
Nú vil ég ekki gera Ara upp þá vinstrivillu og reikna með að þarna sé verið að hvetja til aukinna ríkisafskipta eða fleiri sértækra opinberra aðgerða. Hins vegar er það yfirleitt rauður þráður á bak við heróp af þessu tagi. Til dæmis gæti maður ímyndað sér að þarna sé verið að hvetja til sérstakra skattaívilnana til handa hátæknifyrirtækjum, eða aukinna opinberra framlaga til ýmissa sjóða eða jafnvel einhvers konar verndar frá erlendri samkeppni.

En herópið er gott og gilt ef ekkert slíkt er hugsunin bak við það. Auðvitað þarf að vernda hátækniiðnaðinn eins og annan iðnað, en fyrst og fremst fyrir ríkisvaldinu. Viðskiptahindranir má auðveldlega fjarlægja, skatta má auðveldlega lækka, ýmis opinberlega ákveðin skilyrði fyrir hinu og þessu má auðveldlega afnema. Íslendingar þurfa fyrst og fremst að stunda þá atvinnuvegi sem þeir eru samkeppnishæfir í. Ef hátækniiðnaður er einn þeirra þá mun ríkisafskiptaleysið leiða það í ljós. Annað er blekking.

Geir Ágústsson kl. 20:23