« Um aðgerðir hins opinbera | Aðalsíða | Ekki hlusta á vinstrimenn »

5. febrúar 2006

Til pólitíska rétttrúnaðarsafnaðarins

Til þeirra sem láta sér vel líka að vera umvafðir pólitískum rétttrúnaði meirihlutans:

Fyrst þið teljið óbeinar reykingar svo bráðdrepandi að banna þurfi þær á einkastöðum sem fullorðið fólk ákveður af fúsum og frjálsum vilja að vera á sem starfsfólk eða viðskiptavinir, hvernig í veröldinni stendur á því að þið hefjið ekki krossferð ykkar á því að banna fremur reykingar á heimilum þar sem ólögráða börn eru, sem ólíkt fullorðna fólkinu á skemmtistöðunum hafa ekkert val um að hið meinta bannvæna eitur umlyki þau?

Viljið þið börnin feig?

Eða byggist skoðun ykkar á persónulegum hagsmunum ykkar af frelsisskerðingunni fremur en yfirlýstri umhyggju fyrir þeim sem hafa óþvingaðir valið sér að vinna á reykingastöðum?

Oddgeir Einarsson kl. 20:42